Benidorm

Sol Pelicanos er staðsett á fínum stað á Levante ströndinni í Rincon de Loix hverfinu aðeins 300 metra frá ströndinni. Frábær aðstaða á hótelinu fyrir fjölskyldur, mikið að gera fyrir börnin á meðan dvölinni stendur. Á hótelinu eru 5 sundlaugar meðal annars með nuddpottum og gosbrunnum. Lifandi tónlist og skemmtidagskrá á kvöldin. 

Herbergin eru loftkæld með öllum helstu nauðsynjum svo sem gervihnattasjónvarpi, síma, öryggishólfi (gegn gjaldi), smábar (gegn gjaldi). 

Hægt er að velja um morgunverð, hálft fæði eða allt innifalið.

Góður kostur í hjarta Benidorm.

Internet tenging á hótelinu ( wifi )

 

Athugið: 13 og 14 maí verða framkvæmdir vegna viðhalds á sundlaugarsvæði hótelsins. Ocas sundlaugin verður lokuð á meðan. Pelicanos sundlaugin verður opin.

Upplýsingar

Calle Gerona, 45, 03503 Benidorm, Alicante, Spánn

Kort