MIRADOR MASPALOMAS by Dunas, er fjölskylduvænt 3ja stjörnu hótel á Sonnenland / Maspalomas svæðinu. Hótelið er í sex byggingum með stórt sundlaugasvæði í miðjunni. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem matvörumarkað, apótek, veitingastaði og fleira. Þar sem hótelið er staðsett um 3,5 km frá strönd býður hótelið uppá fríar ferðir 4 sinnum á dag frá hóteli niður á strönd og tilbaka. Einnig gengur strætó á 15 mín. fresti.
GISTING
Einföld, snyrtileg og rúmgóð herberbergi með gervihnattasjónvarpi, síma, öryggishólfi gegn gjaldi, viftu og svölum eða verönd.
AÐSTAÐA
Stór og góður garður, með sólbekkjum og sólhlífum, nuddpotti og tveimur sundlaugum, en önnur þeirra er upphituð yfir vetrarmánuðina. Sérstök barnalaug og leiksvæði fyrir börnin.
AFÞREYING
Skemmtidagskrá og sýningar eru tvisvar í viku og boðið er upp á borðtennis fyrir gesti hótelsins. Gegn gjaldi er hægt að spila billjard og fótboltaspil, hafa aðgengi að internetinu, komast í þvottavélar og komast í dekur með því að panta sér nudd. Golfvellir eru í 2 km fjarlægð frá hótelinu.
VEITINGASTAÐIR
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður með úrvali spænskra- og alþjóðlegra rétta, snarlbar með léttum réttum, sundlaugarbar og diskótek.
Gestir hótelsins sem eru í tveggja manna herbergjum, fjölskylduherbergjum eða herbergjum með sundlaugarsýn, bókaðir með allt innifalið, fá einn frían dinner á The Love and Hate veitingastaðnum og Osaka veitingastaðnum sem eru rétt við hótelið, ásamt völdum drykk.Panta þarf fyrirfram í gestamóttöku hótels. Aðrir gestir hótelsins fá 10% afslátt á þessum veitingastöðum. Allir gestir Mirador Maspalomas hótelsins fá 10% afslátt á The Irish Sport Pub sem er rétt við hótelið.
FYRIR BÖRNIN
Sérstök barnalaug og leiksvæði fyrir börnin.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett ofarlega á Maspalomas svæðinu við Sonnenland á Gran Canaria. Verslunarmiðstöðin El Tablero er 1 km í burtu og 3,5 km eru í ströndina, en frí skutla er á ströndina nokkrum sinnum á dag.
AÐBÚNAÐUR Á HOTEL DUNAS MIRADOR
Útilaug
Barnalaug
Frí skutla til og frá ströndinni
Svalir/verönd
Gervihnattarsjónvarp
Skemmtidagskrá og sýningar
Leiksvæði
Nuddpottur
Billjard
Borðtennis
Fótboltaspil
Hlaðborðsveitingastaður
Upplýsingar
C/ Einstein, s/n, E-35100 Maspalomas, Gran Canaria
Kort